Monday, January 23, 2012

Ferðalagið mitt til Patagoniu - San Martin de los Andes og Bariloche

Á miðvikudeginum þann 11. janúar ákvað ég að halda á vit ævintýranna og stækka sjóndeildarhringinn minn ennþá meira en ég hef nú þegar gert. Ég pakkaði niður útilegufötum, disk, gaffli, hníf og skeið og öllu því dóti sem ég þurfti á að halda. Ferðinni var nefnilega heitið í suðrið og þar er eins gott að vera við öllu búinn þar sem veðurfarið þar er mjög einkennilegt. Svolítið eins og íslenskt veður. Fyrst fór ég heim til Juan og Pancho og fór með þeim til Mendoza, San Rafael sem er rúmlega 3 klst frá. Ég hafði ekki alveg gert mér grein fyrir því í hvað ég var að henda mér út í, en sú laug var mögulega jafn djúp og Congo áin í Afríku. Í Mendoza söfnuðust saman vel strangtrúaðir kaþólskir strákar á öllum aldri plús sjálfboðaliðar sem eru að læra að vera prestar (tekur 7 ár að læra það). Þeir eru allir kallaðir "padre". Með þessum flokki stráka ákvað ég að fórna mér í ferðalag með. Aðallega vegna þess að þessi ferð kostaði mjög lítið og ég hafði tækifæri á að sjá góðan hluta af fegurð Argentínu.

Klukkan rúmlega 4 um dag lögðum við svo af stað. Rúmlega 30 óundirbúnar klukkustundir í draslrútu beið mín. Innan þessara 30 klukkustundna bilaði rútan þrisvar sinnum, lengsta bilunin stóð í 6 klukkutíma. Á þeirri stundu hélt ég, í alvörunni talað, að þetta væri endirinn á þessu öllu saman.
En eitthvað var reynt að laga þessa rútu af og til og við komumst að lokum á leiðarenda. Sem var mikill léttir.
Við komum að á tjaldsvæðinu okkar, sem að heitir Lago Hermoso, og náttúrufegurðin skemmdi alls ekki fyrir. Ótrúlega fallegt umhverfi. En það var ekkert klósett í nágrenni, svo þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig umhverfið í kringum staðinn var í lokinn. En nóg um það. Við tjölduðum og komum okkur fyrir. Síðan var skipt niður í fjögur lið; San Gabriel, San Roque, San Miguel og San Isaac. Þetta eru allar suður-amerískar hetjur. Hvert lið var öðru keppnisharðara, enda taka Argentínubúar öllu eins og Ólympíuleikunum.
Ég ætla ekki að skrifa um alla milljón þúsund leikina sem við fórum í á þessa 10 daga, en þeir voru erfiðir og þreytandi. Þarna var einn lækur sem við gátum baðað okkur í af og til og mjög vinsælt var að búa til "fake" afmæli fyrir einhvern og þá er gott tilefni til að fleygja sá hinum sama ofan í vatnið.
Á leiðinni og á meðan dvölinni stóð fékk ég margar spurningar á mig. Sumar þeirra höfðu rétt á sér... aðrar ekki.

Nokkrar spurningar;
Er Ísland ekki við hliðin á Írak?
Komstu til Argentínu bara til að fara í þessa ferð?
Verður þér aldrei kalt?
Hvernig sefurðu á nóttinni á sumrin?
Býrðu í alvörunni í snjóhúsi?
Veistu hvað melóna er?
En Kiwi?

og sú allra djarfasta...

...ert þú ekki litháinn þarna?

Tilvonandi skiptinemar sem eruð mögulega að lesa bloggið mitt, áður en þið farið út - fariði yfir íslenska siði, týpíska íslenskan rétt, trúnna okkar. Mér finnst líka mjög gaman að segja frá þorrablótinu okkar og lýsa fyrir Örgunum hvað er borðað á þeim tíma árs. Það er sérstaklega skemmtilegt þegar þeir byrja að kúgast.

Fyrsti leikurinn var skóstríð. Hann gekk út á það að skipt var niður í 2 lið, allir fóru úr skónnum sínum og átti að grýta eins mörgum skóm yfir á næsta lið og maður náði. Flestir fengu skólöðrung í andlitið og sumir jafnvel á verri, viðkvæma staðinn. Síðan var hlaupakeppni, og gamli vann alla. Ég kom eiginlega sjálfum mér smá á óvart. Kannski hef ég bara misskilið sjálfan mig öll þessi ár (hæ Hildur Líf).

Alla þessa tíu daga svaf ég í tjaldi, án dýnu, með svefnpoka sem náði mér niður á brjóstkassa - og veðrið í suðrinu er ekkert grín. Hitastigið lækkar niður 20 gráður á 20 mínútum. Alla dagana þurftum við að fara í messu. Kaþólskar messur, eins og ég hef áður sagt á þessu bloggi, er minnst "my cup of tea" af öllu sem ég get hugsað um. Þetta er það drepleiðinlegasta sem ég veit um. Eitt kvöldið hlustaði ég einmitt á Faðir Gian, sem er mjög funny en samt mjög heilaþveginn gamall karl. Hann drullaði niður lútherska trú, evangelíska og múslimatrú. Talaði um að fólk þessarar trúar væri aldrei hamingjusamt og alltaf í fýlu og bara hreint út sagt leiðinlegt. Þeir kæmust aldrei í nálægð við Guð og bla bla bla. Ég fékk smá krampa í hnefana þessa stundina en náði að hemja mig. Hann er nú á áttræðisaldri.
Einnig var á hverju kvöldi fyrir kvöldmatinn farið yfir St. Rosario. Allir eiga einhverskonar hálsfesti með kúlum, 10 og 10 saman. Við hverju kúlu þarftu að fara með sömu bæn aftur og aftur.

"Dios te salve, María, llena eres de gracia, el Senor es contigo. Bendita tú eres entre todas las mujeres, y bendito es el fruto de tu vientre, Jesús."
"Santa Maria, madre de Dios, ruega por nosotros pecadores. Ahora y ahora de nuestra muerte Amen."

Þetta eru setningarnar sem að sagðar eru þrisvar sinnum, 10 sinnum í röð í einu, aftur og aftur. Með fleiri bænum inn á milli, þetta er svolítið ruglingslegt. En skiptir svosem ekki miklu máli.

Einn daginn fórum við í meira en 10 km fjallgöngu, það var erfiðara en ég hélt. Aðallega útaf hitinn var svo mikill. En útsýnið yfir fjallið var ótrúlega fallegt og ég hálf missti heyrn á meðan ég horfði yfir náttúruna.
Við fórum síðan í bæinn í San Martin de los Andes, sem að var rosalega fallegur og svolítið evrópskur í útliti. Þar voru margir túristar, strönd og allt mjög nett. Mikið af súkkulaðibúðum. Suður-Argentína er mjög þekkt fyrir gott súkkulaði, þá sérstaklega Bariloche. Þrír valmöguleikar voru í boði, það var hjólaferð, sofa eða fótbolta. En krúttlegi, bláeygði, ljóshærð útlendingurinn með verslunaráráttuna fékk að fara í bæinn og kaupa netta minjagripi og borða ís í staðinn.

Eitt síðdegið fórum við í göngu rétt hjá tjaldsvæðinu okkar. Þar átti Hitler og hans menn að hafa aðsetur forðum daga. Þetta var svolítið undarleg upplifun og ég tala meira um það seinna því að ég fann svolítið skrýtinn stað. En við fórum líka í messu í einni kirkjunni þarna í nálægð og allt inn í henni var þýskt. Einn strákurinn ældi í miðri messunni. Ekki er vitað hvort að þetta hafi verið kaþólsk trúaræla eða einfaldlega allt úldna spaghettíið sem við vorum búin að borða dag eftir dag og hörðu gömlu brauðbollurnar. Ég skil hann samt fullkomnlega ef fyrri ástæðan er sú rétta. Annaðhvort mun ég koma heim sem heilaþveginn kaþólikki eða trúleysingi. Mér finnst samt líklegra að ég leiðist til trúleysis eftir allt þetta fáfróða bull sem að straujað var inn í haus allra þessa vesalings stráka. Líka bara vegna þess að ég er meiri uppreisnarseggur heldur en að látast undan.

Síðan voru fleiri þrautir í skóginum og í myrkrinu með vasaljós. Þarna var lítið rafmagn og þar af leiðandi ekkert ljós. Ég var að klikkast úr hræðslu og ímyndaði mér að stór skógarbjörn myndi stökkva út úr einu blómabeðinu og éta mig. En allt gekk eins og í sögu. Þarna var einn strákur sem að gerðist aðdáandi að mér, ég var eiginlega bara hálf hræddur við hann. Hann hefur örugglega ekki alveg gengið heill til skógar en hann var alltaf að reyna að fá mig til þess að hlægja. Það tókst ekki enda sá allra ófyndnasti strákur sem ég hef komist til kynni við, án þess að vera of mean. Hann spurði mig einmitt með hroka hvort að það væri ekkert sem að fengi mig til þess að hlægja. Ég svaraði í sömu mynt og sagði að svo væri, að fyndið fólk fengi mig til þess að hlægja. Hann talaði ekki við mig það sem að eftir var ferðarinnar.

Seinasti dagurinn minn á tjaldsvæðina ákvað ég að fara einn í göngutúr um umhverfið, ég sagði engum frá og fór bara. Það var mjög notarlegt að fá að vera einn í náttúrunni í algjörri þögn og skoða sig um. Og þegar ég talaði um aðsetur Hitlers og félaga áðan þá gekk ég á stað með allskonar herrústum og timbri út um allt. Þetta var eins og eldgömul herstöð. Fékk mig mikið til þess að pæla í öllu hvernig þetta hafi gerst. Þarna var einnig hús sem var við það að hrynja niður.

Við lögðum síðan af stað frá tjaldstæðinu til Bariloche sem að tók rúmlega 4 klst. Sem er bara oggupons núna hjá mér. Ég skil ekki hvað maður var alltaf að væla um hvað það væri langt frá Reykjavík til Akureyrar. Pff, bara eins og að skreppa í bæinn fyrir mér. En í Bariloche gistum við einmitt í herstöð, mjög öruggur þar. Bærinn í Bariloche er eins og að vera í paradís. Hale fokking lúja. Ég elska þessa borg. En þar er mjög dýrt að lifa og talað er um að túristar séu að nálgast meirihlutann af fjölda fólks í þessari borg. Og súkkulaðibúðirnar, ómælord! Þær voru örugglega yfir 100. Ég fékk mér McDonalds, ekki svo langþráðann en aðeins til þess að taka mynd af mér með BigMac og monta mig. 
Við fórum síðan að flottasta hóteli í Argentínu sem ber nafnið Llao Llao og er sjúkt! Og landslagið var fáránlegt. Hafði aldrei séð svona áður.


Ég er hundrað prósent á því að ég sé að gleyma einhverju mikilvægu núna, en það verður þá bara að hafa það. Ég ætlaði að skrifa um hvern einasta dag í einu í bók, en ég gleymdi pennanum heima. Frekar vel gert. En það sem ég lærði af þessari ferð er að 10 dagar í tjaldútilegu með bunch af einhliða strangtrúðum kaþólikkum er of mikið fyrir mig í einu. Samt sem áður var þetta rosalega einstök upplifun og fróðlegt. Engu að síður var frábært að sjá fegurðina sem að Argentína hefur upp á að bjóða og síðan eignaðist ég líka fullt af frábærum vinum, allsstaðar að úr landinu. Ég vona að ég fái tækifæri til þess að eyða meiri tíma í Bariloche.

Hér er albúm með fullt af myndum frá ferðalaginu, opið öllum: Ýta hér


ps. ég man mjög vel að fyrir skiptinemaferðina mína þá gerði ég lítið annað en að skoða síður frá öðrum skiptinemum og láta mig dreyma. Ég hafði margar spurningar ósvaraðar. Þess vegna vil ég hvetja alla þá sem að eru að lesa bloggið mitt í sömu sporum og hafa einhverjar spurningar að endilega spurja mig í commentum eða í facebook message. Ég hef einnig gmail; ulfarviktorbj@gmail.com ef þið viljið senda mér póst. Ég svara öllum spurningum. :)

7 comments:

  1. Flott blogg hjá þér Úlfar! Svo fallegt landslagið á myndunum... Dííjj ég öfunda þig svo... komin með ógeð af blessaða snjónum :)

    Þín Sella

    ReplyDelete
  2. skemmtilegt,frábært, áhugavert, yndislegt, fyndið blogg & þetta hefur örugglega verið mjög skemmtilegt ferðalag!! :D
    OG loool á spurningarnar hahaha!
    chau
    <3sAkn

    ReplyDelete
  3. Eins og venjulega alltaf gaman að lesa það sem þú skrifar...og myndirnar flottar...þetta var já, trúlega svolítið öðruvísi ferð en við erum vön....og vegalengdir ekkert mál hjá þeim...Bara bestu kveðjur

    ReplyDelete
  4. Snilldar blogg og eh þúst ;*
    ég hló mikið af þessum með strákinn sem hélt að þú kynnir ek að hlægja ... eitt stórt LOL
    sakn og eh allt barahh í tætlur áwst !
    bijo
    kv. bára klára hehe

    ReplyDelete
  5. Æði að 4tíma akstur sé svona písofkeik .. Því þú átt eftir að þurfa að fara í þónokkrar Ak ferðir næstu 3-4 árin að heimsækja uppáhalds systir þína !! :D*

    *Hlakka til að fá þig heim Fjósti*

    -Kristín

    ReplyDelete
  6. hljómar allt ruuusa vel nema þetta kirkjustúss, greyið mitt finn svo til með þér haha :)
    en haltu áfram að koma með frábærlega stórskemmtileg blogg :)

    -Sæja :)

    ReplyDelete
  7. Æj hvað ég væri til í að koma til þín og kíkja í smá sólbað ! allt á kafi í snjó hérna haha :D
    En skemmtilegt blogg og gaman að fylgjast með þér og hvað þú ert að gera :)!
    -begga

    ReplyDelete

Ég yrði rosa glaður ef þú myndir commenta!