Monday, July 25, 2011

Óvæntir fjölskyldumeðlimir, vitlausar upplýsingar AFS og skrautlegur skóli

Góðan daginn kæru vinir!


Eins og þið vitið þá fékk ég upplýsingar um Argentínsku fjölskylduna mína nú á dögunum, en eitthvað voru þær nú rangar. Ég fékk þær upplýsingar að báðir bræður mínir væru fæddir 1993 og hélt því að þeir væru tvíburar. Þeir eru það ekki! Matias (Gaston) er '91 og Jonatan (Joni) er '93. Og já Joni segist heldur ekki vera trúlofaður eins og hann virðist vera á Facebook. Þeir eiga samt báðir kæró og ég er búinn að tala við Paulu og hún er mjög fín og er líka að taka að sér skiptinema heima hjá sér frá Ítalíu. Þessi ítalski skiptinemi mun fara í sama skóla og ég. Gaman að því.

Ég er búinn að vera að tala við þá á fullu seinustu daga og einnig son Liliönu sem er yfir AFS í San Luis og heitir Boris. Þau ödduðu mér bæði á Facebook þann sama dag og ég fékk upplýsingar um fjölskylduna. Þau eru rosalega spennt yfir því að ég sé að koma. Þetta fólk er alveg fáránlega vingjarnlegt. Evrópubúar eru rosalega lokaðar týpur ef við berum þá saman við Argentínubúa.

Gaston og Joni finnst mér alveg frábærir, þeir kunna nánast enga ensku og því hef ég þurft að reyna frekar mikið á mína slæmu spænskukunnáttu með hjálp spanishdict.com... sem er algjör lifesaver þessa dagana!
Við höfum spjallað um ýmislegt saman og ég fékk m.a. að komast að því að ég mun líka eiga eldri systur sem býr ekki ennþá á heimilinu og heitir Vanesa Ivana, hún er gift og á ótrúlega sætt lítið barn. Það er líka eins gott að ég sé dýravinur þar sem á heimilinu verða 4 dýr. 3 hundar og 1 köttur. Ég er ekki mikill kattaunnendi, en ég þarf bara að gjöra svo vel og líka við þennan heimiliskött. En þrír hundar? Sæll!

Mamman mín sagði mér að hún væri ótrúlega spennt að fá mig. Þau hafa planað fjölskylduhitting þegar ég kem á staðinn, þau eru svo krúttleg. Ég á alveg eftir að líka vel hjá þeim, ég er viss um það.
Pabbinn er líka ótrúlega fyndin týpa. Alveg fáránlega fyndinn meirisegja. Hann lúkkar svolítið eins og mafíjósi. En eiga suður-amerískir feður ekki að vera þannig? Ég held það. Mér finnst hann allavega kúl.


Ég mun fara í skóla með Gaston sem heitir n°5 Jose Antonio Alvarez de Condarco og er mjög stór skóli sem býður upp á arkitektúr og svona master building dót. Held þetta sé mjög spennandi, en verður eflaust mjög skrautlegt því ég held að svona nám krefst þolinmæði... oooog þolinmæði er ekki til í minni orðabók.


Já! og brottförin mín er 18. ágúst. Ég talaði um í seinasta blogginu að AFS hafi skipt niður brottförunum í 18. ágúst og 16. september. Ég fékk svo þær fréttir um daginn að allir skiptinemarnir fá að fara inní landið 18. ágúst, með eða án vegabréfsáritun. 87% verða komnir með pottþétta visaáritun en hinir fá að koma inn sem ferðamenn. Sem ég tók fagnandi! Jaaá.... það eru 23 dagar til stefnu!





Esta es mi hermosa familia! :)
Joni - mi papá - mi mamá - Gaston


Þangað til næst...

4 comments:

  1. Vildi að það væri hægt að að like-a bara, allavega: Like ;)

    ReplyDelete
  2. Arney þín allra bestaJuly 26, 2011 at 8:28 AM

    Vááá hvað ég er orðin spennt fyrir þig! :-D
    Þau virka allavega frábær fjölskylda! :) Bíð speennnt eftir næsta bloggi Úlfar minn! :*

    ReplyDelete
  3. Já þetta hljómaði nú dálítið skringilega að þessir bræður þínir ættu báðir að vera fæddir '93 en samt ekki tvíburar.
    Vonandi mun þessi fjölskylda reynast þér vel, þau líta út fyrir að vera mjög hresst og skemmtilegt fólk. Ég segi bara góða skemmtun elsku frændi, gaman að vita að þú fáir að fara út í ágúst :)

    ReplyDelete
  4. Þetta verður frábært hjá þér elsku litli úlfar minn !!! voða sætir strákar .. sjáumst eftir ár hehehehe

    ReplyDelete

Ég yrði rosa glaður ef þú myndir commenta!