Jæja. Sæl veriði öll sem eitt.
Eftir fjölmargar eftirspurnir, væl og vol um að gera nýtt blogg ætla ég að láta verða af því. Það er búið að líða ágætlega langur tími síðan ég bloggaði síðast og aðalástæðan fyrir því að ég hef ekki haft tíma til að nenna því... ef það meikar einhvern sense.
Ég fresta því alltaf þegar ég ætla að byrja því að ég veit að það getur tekið metlangan tíma. En ég hef nú gert þó nokkurn slatta síðan ég bloggaði en ég ætla að sjálfsögðu ekki að skrifa um hvern einasta dag. Aðeins það helsta sem hefur gerst. Btw, ég hef verið að pæla í að byrja á video bloggi frekar. Hvernig lýst ykkur á það?
Dagarnir hérna líða alveg með eindæmum hratt, ég er búinn að vera hérna nú í 2 mánuði og 2 vikur en ég á mikið eftir. Venjulegasti dagurinn hjá mér er að vakna rúmlega 6 um morguninn og fara í skólann klukkan 7. Láta mér leiðast í skólanum, hlusta á iPod (sem er stranglega bannað) og/eða horfa á bekkjarbræður mína kasta krítum og stólum um alla kennslustofuna. Þeir eru samt allir mjög fínir strákar.
Þann 17. október fagnaði ég átján ára afmælisdeginum mínum hér í Argentínu. Fyrsta skiptið í lífi mínu sem ég fæ sól og 27 stiga hita í afmælisveðursgjöf. Mjög fínt það. Dagurinn minn byrjaði reyndar á því að vakna klukkan 6 og klæða mig í þessi hel***** spariföt sem ég þarf að vera í dagsdaglega (kv bitri gæinn) og fara í messu í kirkjunni við hliðiná skólanum mínum. Eftir það fór ég inn í stofuna og þar beið mín þessi fína dulce de leche kaka á borðinu, einum of girnileg. Graciella (enskukennarinn minn og einnig AFS sjálfboðaliði) sagði mér að nú ætla ég að fagna deginum mínum með strákunum í bekknum mínum. Rosa krúttlegt. Þeir voru líka ekkert að hata það að ég ætti afmæli að fá þessa köku og talca-gos og þar með missa af heilum sögutíma.
Eftir skóladaginn fór ég með fjölskyldunni minni á veitingastað sem heitir Buddha Longue og er eins og nafnið gefur til kynna með fullt af Buddha styttum og ótrúlega flottur staður. Þar fékk ég mjög góðan mat og gjöf frá foreldrum mínum, þennan fína Kevingston bol sem er merki í Argentínu fyrir íþróttina Polo, sem er íþrótt þar sem leikmenn spila einskonar golf á hestbaki. Betri útskýringu kann ég ekki. En þetta er víst ein sú dýrasta íþrótt sem hægt er að iðka. Aðallega vegna þess að þú þarft að burðast með helvítis hrossið hvert sem þú ferð um heiminn.
Eftir matinn fór ég heim í hús og við borðuðum ísköku og ótrúlega góðan jarðarberjavodkadrykk. Var ekkert að hata það. Um kvöldið eftir að hafa svarað milljón og fimmtíu afmæliskveðjum á Facebook (takk elsku fólk!) fór ég í bæinn og hafði það notalegt.
Talandi um Polo íþróttina, þá fór ég einmitt um daginn að horfa á heimsmeistaramót í Polo sem var að einhverjum ástæðum haldið hér í sveitum San Luis fylkisins. Þar var Argentína að keppa á móti Indlandi og að sjálfsögðu vann mitt land. Þar var fólk allsstaðar að, frá bretlandi, ástralíu, bandaríkjunum og fl. Var ótrúlega gott að heyra loksins einhvern tala proper ensku.
Hér er búið að vera þvílíkar kosningar á fullu og er það alveg frekar heilagt í Argentínu. Þú mátt til dæmis ekki fara út að skemmta þér á meðan og það er stranglega bannað að selja áfengi eftir klukkan 2. Í bænum var fullt af fólki með kosningarblöð og óþolandi bíll sem keyrði hring eftir hring og spilaði sama leiðinlega lagið aftur og aftur. En vegna þessa var lítið um djamm á mér.
Mánudaginn 24. október fór ég síðan í ferðalag með 3 öðrum skiptinemum hér í San Luis (Edoardo frá Ítalíu, Elisabeth frá Belgíu og Martina frá Austurríki) til bæjarins Naschel sem er mjög lítill og rólegur bær í 1,5-2 klst fjarlægð frá San Luis borgarinnar. Þar eyddum við viku í öðrum skóla (agricultural) og er hálfgerður sveitaskóli blandaður producción (vinna með mold, og allt sem tengist bóndastörfum) og economía (hagfræði obviously, stærðfræði og fl). Við vorum rosalega lítið samt í skólanum þessa viku því það var allir á fullu að skipuleggja hátíð sem var föstudag-laugardag og sunnudag. Ég gisti þarna á einskonar heimavist með fjórum öðrum strákum, síðan bættust við 3 aðrir. Mér leist ekkert svakalega vel á þessa heimavist, sérstaklega þar sem létt var að ræna hlutum frá öðrum og lenti ég heldur betur í því. Fínu dýru heyrnartólin mín sem ég keypti í Atlanta hurfu.
Sendi kveðju til þann sem stal þeim, hijo de puta!
Í Naschel eignaðist ég yndislega vini sem ég réttast sagt hefði ekki viljað yfirgefa. Mér leið rosalega vel þarna. Þessi bær er alveg beyond rólegur, ekkert slæmt gerist þarna og allir þekkja hvorn annan. Þetta er rúmlega 6000 manna bær, en samt heilsa allir hvor öðrum þegar það labbar framhjá.
Fyrsta daginn minn vann ég í drullunni og með milljón egg til að sjá hvort að unginn inní sé dauður eða ekki. Það gerði maður með einskonar lampa sem sýndi manni hvort væri. Mjög áhugavert.
Með vinum mínum í Naschel fór ég út að borða, heim til Cynthiu og borðuðum gnocchi, spiluðum monopoly og sungum I'm Yours með Gian Franco vini mínum. Á föstudeginum fórum við svo á feitt djamm, þar gerðist margt skrautlegt og eins óviðeigandi og þar er ætla ég ekki að láta það eftir mér að skrifa það á þessu bloggi. Þið megið spurja mig á Facebook eða einhvernveginn ef þið eruð alveg að deyja úr forvitni.
Það var alveg frekar spes að vera þarna í þessum litla bæ. Fyrsta skiptið sem mér leið virkilega eins og ég væri frægur. Mjög óraunveruleg tilfinning. Þarna hljóp fólk á eftir mér, kallaði nafnið mitt og heimtaði að fá mynd af sér með mér, tosaði í mig og beið í röðum eftir að fá að taka í hendina mína. Þetta er vegna þess að í svona litlum bæ koma aldrei manneskjur annarsstaðar að frá heiminum og það er mjög skrýtið að sjá allt í einu nýtt andlit.
Seinasta daginn minn fór ég svo með Gonzalez, vini mínum heim til hans og borðaði asado með fjölskyldunni hans. Það var mjög sorglegt að kveðja vinina eftir aðeins vikudvöl og er ég staðráðinn í því að heimsækja þau nokkrum sinnum áður en ég fer til Íslands. Í svona litlum bæjum er fólk með rosalega hlýtt hjarta og taka þig nákvæmlega eins og þú ert. Og það elska ég.
Á þriðjudaginn 1. nóvember fór ég og skiptinemarnir (Edoardo, Martina, Elisabeth og Martina) í viðtal hjá einhverju dagblaði hér í Argentínu sem er eitthvað rosa mikilvægt blað hérna. Þar var spurt okkur ýmislegt um jólahefðir okkar. Þemað var semsagt “Navidad lejos de casa” eða “Jól burtu frá heimilinu”. Eftir þetta ákváðum við, fyrst við vorum nú öll saman, að fara í bæinn og fá okkur eitthvað kalt að drekka – því það er byrjað að hitna allsvaðalega hér og hitnar alltaf meira og meira. Við töluðum saman í frekar langan tíma þangað til að við ákváðum öll að fara heim til okkar. Ég og Germán hittum síðan Ivönu sem er besta vinkona Germans og við fórum í Grido og ég fékk mér ís. Alveg besti ís sem ég hef smakkað, hef sagt það áður og mun segja það oftar.
Í gær, miðvikudaginn, 2. nóvember fór ég með pabba mín í útlendingastofnunina hérna í San Luis því að túristarvisað mitt er að renna út. Það er semsagt eitthvað vesen með visa-áritunina sem ég bjóst mjög vel við þegar AFS í Argentínu á í hlut. Ekki það skipulegasta í heimi, svo langt frá því. Þennan dag átti sér stað hræðilegur atburður hér í San Luis. 7 litlar stúlkur létu lífið í hörmulegu slysi þar sem strætisvagn keyrði í veg fyrir lest þegar hann var á leiðinni til Mendoza. 2 stúlkur slösuðust alvarlega. Þessar stúlkur voru allar í skólanum Santa María sem er semsagt í sama skólasystemi og ég nema bara stúlkuskólinn. San Luis borgarar allir sem einn eiga nú um mjög sárt að binda og ríkir mikil sorg hérna. Ég fór í messu í stærstu kirkjunni hérna í San Luis og hún var full upp að dyrum.
Í dag fór ég einnig í messu og þar var mun meira fólk, alveg troðið og leiddi það alveg út á götu. Fjölskyldur fórnarlambanna voru einnig á staðnum og Guð minn góður hvað þetta er sorglegt. Að sjá allan þennan sársauka og sorg sem fólkið er nú að ganga í gegnum. Hræðilegt. Eftir kirkjuna fór ég í kistulagningu hjá einni stúlkunni sem vinafólk okkar er skylt. Get ekki lýst þessu með orðum hversu sorglegt þetta er. En það verður ekki skóli hjá mér þangað til einhverntíman í þar næstu viku útaf þessu.
Innskot: Í dag var 35 gráður og sól, ég var við það að þorna upp.
Þessa helgi er ég mjög mögulega að fara til Mendoza svo ég hef mögulega eitthvað til að skrifa um í næsta bloggi.
Þangað til næst,
hafiði það gott á Íslandinu góða! :)
ps. ég vil komment! <3
leiðinlegt montblogg.
ReplyDeleteokkur er alveg sama þótt það sé 35 stiga hiti hjá þér!
hafðu það samt gott og njóttu hitans.
ps ég er sjúkt forvitin hvaða óviðeigandi djammhegðun fór þarna fram!
Eva Brá :)
gamaaan að lesa blogg ! fleiri fleiri fleiri ! þó svo að ég skil að þu nennir ekki og hafi r annað að gera:) kv indi
ReplyDeleteÉg elska að þú sért farinn að sletta á spænsku haha:D Hijo de puta... þú ert það nú alls ekki en ókey. Love, KDÓ.
ReplyDeleteÞað er alltaf jafn gamana að lesa bloggin þín og svo forvitnilegt hvernig hlutirnir eru þarna...Bíð eftir næsta að sjálfsögðu Eigðu ánægjulegar stundir elsku frændi....
ReplyDeleteDulce de leche!! mmmm... bannað að setja svona inná netið ;) en gaman að lesa bloggið þitt. Við biðjum öll að heilsa. Kv, Edda og allir hinir :)
ReplyDeleteGaman að heyra frá þér enn og aftur! Elska að fá blogg til að lesa af og til (bjargaðir mér frá hagfræðinni núna t.d., TAKK) :)
ReplyDeleteEn já, hér fer alveg bara að detta í -35°, frost og ógeð þannig það er bara flott ..
Heyri í þér betur á facebook en alltaf gaman samt að fá blogg líka :D
-Bára
rosa skemmtilegt blogg hjá þér eins og öll hin !!
ReplyDeletesé að þú sért að skemmta þér rosa vel sérstaklega þarna á laugardaginn heheheh :D :D
en hlakka til að lesa næsta blogg
miss you :*
Hver elskar ekki nýtt blogg! Naschel hljómar eins og frábær bær, gaman að þú hefur skemmt þér svona vel! Þó mjög sorglegt að heyra með slysið, samhryggist fjölskyldunum :(
ReplyDelete-Kristín H.
Elska að lesa bloggin þín. Nenniru að gera video blogg næst, plís, það væri snilld:D
ReplyDeleteÖmurlegt alveg að það sé svona mikill hiti og sól. En hafðu það gott!
Kv, Kata
Gott að þú skemmtir þer vel Úlfar :D , ekkert smá sorglegt með bílslysið.. fékk alveg tár í augun að lesa þann part :/ Ég er eendalaust forvitin um þetta sem gerðist á djamminu eins og margir aðrir byst ég við haha :D !
ReplyDeletestórt knús á þig!
Gaman að lesa bloggið þitt Úlfar minn:)
ReplyDeletehaha hljómar allt ótrúlega skemmtilegt, fyrir utan væntanlega bílslysið þarna ;/
ReplyDeletegaman að sjá hvað það er sjúkt fjör hjá þér þarna,og allir vinirnir sem þú eignast alls staðar :)
hlakka til að lesa næsta blogg :)
-Sæunn
víííj elska að lesa bloggin þín úlfar! og jáá, held að það sé alveg sniðugt að byrja með video blogg :)
ReplyDeleteÉg vil nú ekki vera að monta mig neitt, en það var sko 10 stiga hiti hérna í morgun hehehe!
Gaman að sjá hvað þú ert alltaf að eignast fleiri og fleeiri vini!
Og rosalega sorglegt með bílslysið :(
-Erna Björk
Frábært blogg félagi ... sakna þín mjög mikið en láttu það ekki bugast og njóttu sólarinnar þín vinkona rakel
ReplyDeleteNei jesús minn ekki fara að koma með video blogg hahah :) ... En hlakka til að heyra í þér eftir helgi á skype dateinu okkar :D
ReplyDeleteLuuv Kría
alltaf jafna gama nað lesa bloggin þín !! hahaha sakna þín rosa !!
ReplyDeleteSkemmtu þér vel og njótu lífsins þarna í sumar sólinni !!
þín vinkona Alexa
Flott blogg. Videobloggið væri líka skemmtileg hugmynd.
ReplyDeleteVá hvað það væri mikil snilld er þú hefðir videoblogg ! Er náttla búin að þurfa horfa á smettið á þér á hverjum degi í þússt 13 ár þannig er alveg farin að sakna þess smá :D en bara skemmtu þér vel þarna úti!
ReplyDelete-begga:D
Vááá hvað ég hefði viljað sjá þennan litla bæ! :-) Hljómar svo fjölskyldulegt og skemmtilegt :) Endalaust hræðilegt þetta með 7 stelpurnar :-/ úff...
ReplyDeleteen já enn og aftur ! gaman að lesa og JÁ ég er til í VÍDEÓ!:* sakn ást:*