Hæ.
Ég er semsagt að fara til Argentínu sem skiptinemi í ágúst, mjög spennandi allt saman! Sumir kannski vissu að ég var búinn að búa til "tumblr" bloggsíðu en ég sá að hún var ekki nógu skilvirk, ekkert sérstaklega gott að blogga á henni svo hún er out. Mér fannst hún samt alveg miklu flottari og stílhreinni. En þessi er yndisleg líka í alla staði og þar sem ég mun mögulega, ábyggilega, kannski, ef til vill koma til með að blogga nokkur blogg hér á þessari síðu á meðan ég er úti þá krefst ég þess að þið gefið mér nú comment. Bara svona smá til þess að ég viti að þið séuð nú ennþá á lífi.
En allavega var undirbúningsnámskeiðið þann tuttugastaogsjöunda-áttunda og níunda maí og var bara mjög gaman á því að kynnast öllum skiptinemunum og svona. Núna var ég að fá fregnir af því að sjálfboðaliðarnir í Argentínu eru að fara með umsóknina mína til fjölskyldu sem kemur til greina fyrir mig. Ég læt ykkur öll vita með mikla gleði í hjartanu þegar ég fæ að vita einhverjar upplýsingar um það mál!
Þangað til næst,
veriði sæl um hæl.
ÚVB
hæ var að lesa allt bloggið var eithvað vesen að finna það skrifaði nefnilega ulfar argentina en allavega geggjað gaman að lesa þetta. langt ferðalag:) gott að þér líkar vel það er eðlilegt að fá smá heimþrá úlfar minn.
ReplyDeletevissi ekki að þú værir að fara í arkitektskóla kv sigrún systir